Kristrún og co.

Kristrun og co.

11.12.2006 12:59:12 / daniel

HEIPSS...

Nei hvað haldiði mín er á lífi, bara mikið að gera í skólanum og klára allt sem klára þarf áður en við förum til ísland en það eru bara 10 dagar í það. En nú hef ég smá tíma því Gabríel er veikur og ég er með hann heima, hann byrjaði reyndar á því að augnsýkingu á fimmtudagskvöldið og mátti því ekki fara í leikskólann á föstudaginn svo ég var heima en Alli kom svo heim kl:13 til að fara með Gabríel til læknis og svo var jólahygge í skólanum hjá kl: 14 og ég komst á hana, mjög huggó. Ég hef kannski ekki tíma því ég kannski nota tíma og læra eitthvað en þið vitið hvernig þetta er híhí.

Annars er kannski ekki mikið að frétta af okkur erum bæði á fullu í skólanum og gerum voðalega lítið eftir það. Við fórum í gær í Den fynske landsby sem er hérna í Odense, það er svona í árbæjarsafn stíl en mun stæra , það var voða gaman, ég og Daníel enduðum á því að fara tur í hestavagni, Gabríel vildi sko ekki sjá það að koma með svo hann beið bara með pabba sínum.

Við erum öll orðin voða spennt að koma á klakkann, Gabríel hlakkar mikið til að fara í flygmasken eins og hann segir það og er mjög spenntur að hitta Ömmu, Afa og Helga, það er svona fyrst núna sem hann er að fatta þetta alveg að þau eiga heima í öðru landi og eru amma og afi. Hann talar mikið um það þessa dagana.
Ég vil líka minna á afmælið mitt ég er ekki búin að fá svar frá nokkrum vil ég gjarnan vita hvort þið ætlið að mætta eða ekki, og ef það eru einhverjir sem ég hef ekki boðið en vilja mætta þá endilega hafa samband við mig:).

Ég eignaðist litla frænku 19/11 þá eignaðist hún Ranghildur frænka litla prinsessu, svo bíðum við eftir Írisi systir hans Alla en hún á að eiga á morgun, eða er sett þá . Gaman gaman fullt af nýjum börnum að skoða, Margréti vinkona átti líka litla prinsessu 4 sep. Sem við eigum eftir að sjá svo það er fullt að gera:).

Hilsen og sjáumst bráðum.

P.S kemur jóli ekki í nótt?
P.S.S Ef einhver vill senda okkur jólakveðju þá er heimilisfangið hér úti SANKÆRET 80 5260 HØBY ODENSE S en á íslandi þar sem við verðum FAGRIHJALLI 78 200 KÓPAVOGUR.


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 22:08:18 / daniel

:)

Jæja nú er ég búin að vera á klinkinni í 2 vikur og gengur alveg briljandi fyrir utan að ég vildi að ég gæti spjallað jafn mikið við kúnnana og hinar en það kemur vonandi. Á þriðjudaginn lenti ég meira segja í því að ég fékk systir skólastjórans til mín, soltið pressa sko, en nú eru kennararnir búnir að tilkynna mér það að hún var súper ánægð hukket og ég náttúrulega í síkjunum, svo allt gengur vel. Eins og flestir vita þá erum við að koma til íslands eftir 20 daga og er ég búin að senda í email boðskort í afmælið mitt en ef einhver hefur ekki fengið þá endilega láta mig vita því ég veit ekki hvort ég sé með rétt email hjá öllum og mig vantar reyndar nokkur, og ef einhver sem bara langar að koma sem les þetta þá endilega hafa samband við mig. Hilsen

» 4 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
18. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 19137
Klukkan
Myndasöfn
Gamla bloggið mitt.