Kristrún og co.

Kristrun og co.

02.10.2007 08:08:48 / daniel

Slökun í ålaborg

Þá erum við komin heim eftir svakalega slokkunar helgi í Álaborg, ég held að ég hafi bara ekki sofið svona mikið síðan ég var unglingur næss.

En það byrjaði ekki vel við vorum búin að panta okkur hótelherbergi á netinu, héldum að við værum að fá hið fínasta herbergi með baðkari sem við settum sem skilirði að væri, en já við komum inn á hótelið, maðurinn í mótokunni var svo gamall að ég hélt að hann væri að deyja eða væri bara dauður, herbergið var pínulítið og ligtin ógeð svona gömul þið vitið að við þurftum að byrja á því að lofta út og allt svona eins og að hoppa 50 ár aftur í tímann en jæja þá var ákveðið að kíkja á baðkarið, já það var sýnishorn af baðkari svona helminkur af venjulegu kari, við hefðum kannski getað setið í því.

Eftir svona 10 mín í herb. tókum við þá stóru ákvörðun að fara niður og tala við dauðakallinn, vorum bara mjög kurteis og sögðumst vilja fara og finna annað hótel jújú það var í góðu lagi, en við vörum ekkert viss um að fá endilga annað herbergi en við vissum að við mundum ekki lenda á götunni þar sem Gústi og Rebekka vinafólk okkur vöru búin að bjóða okkur að gista, við fengum svo þetta fína herbergi á Radison SAS gott þá gátum við farið að slappa af.

Fimmtudagskvöldið fórum við út að borða á Mexikonskumstað mjög góðum og ég fékk mér að sjálfsögðu frosen margaríta nammi namm, svo þegar við vörum búin að borða hittum við Gústa og 2 vini hans á poolbar þar sem var tekið nokkrar leiki eða strákarnir og horfði nú bara á. við fórum svo bara snemma heim því við ætluðum að vera nokkuð hress á föstudeginum til að kíkja aðeins á borgina og um kvöldið fórum við svo heim til Gústa og Rebekku sem tóku á móti okkur með blómum, súkkulaði og rauðvínsflösku því við áttum brúðkaupsafmæli(takk en og aftur fyrir okkur dúllurnar mínar), við sáttum þar eitthvað fram á kvöld og drukkum svona ágætlega mikið, ég held að ég hafi studdað 2 hvítvínsflöskum alveg ein plús svona hálfa flösku af freyðivíni, en alla veganna var haldið í bæinn í leigubíl sem fór nú alveg með mig ég held bara að ég mundi ekki meika það guð hvað mér var flökurt ojjjj og þegar við vörum komin leið mér sko ekki vel þannig að Alli fór með mig upp á hótel sem betur fer því þegar ég kom þangað kom gusan ojjjjj ég held ég hafi bara ekki ælt svona mikið áður en ég fór bara að sofa en Alli fór aftur út að hitta fólkið, ég geri bara betur seinna þegar þið komið hingað Gústi og Rebekka ;).

Laugardagurinn fór svo bara í þynnku og léti sofið út í eitt og pantað room sorviss upp á herbergi það var sko ekki hreyft sig of mikið, sunnudagmorgunn var haldið svo heim að hitta unganna okkar sem við söknuðum mikið.


jæja komið gott:)

Hilsen


Dagrún skrifaði
Til hamingju með brúðkaupsafmælið elskurnar mínar. Hahahaha ég sprakk úr hlátri, ertu komin úr æfingu KRistrún mín??? Nú verðum við að fara að hittast hahahaha. hljómar samt mjög góð helgi hjá ykkur knús
Íris Ólafs skrifaði
hæ hæ til hamingju með brúðkaupsafmælið turtildúfur(æ for gott sorrí);0) en gaman að sjá að þið skemmtið ykkur vel í ferðinni vona að þú sért ekki ennþá þunn hahahahahahahahaahha;0) Æðislegur árangur hjá þér Kristún, til hamingju með útskriftina;0) núna geturu komið heim til ísl. og við opna saman snirti og nudd stofu híhí;0) kveðja frá klakanum;0)
kristrún snyrtifræðingur skrifaði
hahahaha já Dagrún mín þú verður að fara koma til mín, þetta gengur ekki alveg komin úr æfingu sko;)
Rebekka skrifaði
Ég sá flöskurnar ekki fyrren við komum heim aftur, ekki von að þú varst svona fersk í bílnum:) Takk æðislega fyrir heimsóknina! Jlakka til að sjá ykkur næst.. Hilsen frá Álaborginni.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagsetning
22. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 19196
Klukkan
Myndasöfn
Gamla bloggið mitt.