Kristrún og co.

Kristrun og co.

12.10.2007 07:12:22 / daniel

Smá uppfærsla.

Ég keypti mér stóru læknabókina í vikunni, eitthvað sem ætti að vera til á öllum heimilum, eiginlega sé ég eftir að hafa ekki fjarfest í henni meðan ég var í skólanum því hún hefði komið að góðum notum þar sem ég var líka að læra anatomi og fysiologi en já ég er mjög ánægð með hana.

Ég fékk ávænta heimsókn í síðustu viku, Gunnar bróðir ömmu minnar sem býr í USA hringir í mig og segist vera hér rétt hjá og geti ekki hugsa sér annað en að kíkja við hjá mér, ég hef ekki séð hann í kannski 8 ár svo það var mjög gaman að sjá hann og konuna hans, mér þótti ofboðslega vænt um það að hann skilti hugsa til mín þar sem ég var frekar leið yfir því að vita af ættfólki mínu í koben sem hefur aldrei komið í heimsókn og láti mann ekki vita, greinilega ekki hugsað til manns þar. Ég hef spáð í því hvort ég ætti að koma til ÍS og láta engan vita nema útvalda eða bara engan, nei ég segi svona bara svipað dæmi.

Á föstudagskvöldið hitti ég nokkrar stelpur úr skólanum, fórum við í keilu og svo að borða á eftir, ein af þeim er frá Tyrklandi og á Tyrkneskan mann og önnur er dönsk en á arabiskan mann kl:10 byrja mennirnir að hringja í þær til að ath hvort þær væru nú ekki að fara koma sér heim spáið í því þær mega ekki vera úti með vinkonum sínum nei þær eiga að vera heima að hugsa um börnin því mennirnir gera það ekki þær þurftu að fá barnapíu svo þær kæmust aðeins út, þar sér maður hvað maður hefur það gott.


Við hjónin erum að fara á Sigurrósar tónleika næsta föstud.(ef við fáum barnapíu, óska hér með eftir einni) mér hlakkar mjög mikið til að sjá þá þar sem ég hef aldrey farið á Sigurrósar tónleika áður, það verða sem sagt tónleikar og svo sína þeir bíómyndina HEIMA.


Nú eru allir í fjöls. að fara í haustfrí í viku og ætlum við að reina að gera eitthvað skemmtilegt förum alla veganna til Tysk að byrgja okkur upp af góðum drykkjum og komum kannski við í sonderborg þar sem við gleymdum flíspeysum af báðum strákunum síðast, og svo verður maður líka að slappa aðeins af.

Ég mæli með nýja diskinum hans James Blunt ég er alveg sjúk í hann:)

KAn I har det godt

HILSEN

Dagrún skrifaði
Vá óvnæt heimsókn má sko segja, alltaf gaman. Komdu bara til íslands og segðu mér það bara og vertu allan tímann með mér tíhí;) Góða skemmtun á tónleikunum og æðislegt að fá blogg
Dagrún Fanný skrifaði
Vííí hlakka svo til að fá þig, segðu stelpunum að hringja eða senda mér mail...

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagsetning
18. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 19141
Klukkan
Myndasöfn
Gamla bloggið mitt.