Fiskurinn
(19. febrúar - 19. mars)
telenstar.com
Árstími Fisksins er í lok vetrar, þegar veður er umhleypingasamt. Þetta endurspeglast í eðli Fisksins, í margbrotinni og misjafnri skapgerð. Tími Fisksins er biðtími. Vorið er að nálgast og með því fyrirheit sumarsins en enn ríkir þó vetur. Á þessum tíma er litið um öxl yfir liðinn vetur. Jafnframt er horft fram á við og það undirbúið eða hugleitt sem gera skal á komandi vor- og sumarmánuðum. Þetta birtist í því að Fiskurinn hefur hæfileika til að hafa yfirsýn yfir mál og hugleiða þau í stærra samhengi.
Aðlögunarhæfni
Fiskurinn er í innsta eðli sínu næm tilfinningavera. Hann er breytilegt vatnsmerki og getur því tjáð sig á margslunginn hátt. Hann er síðasta merkið í dýrahringnum og er oft sagt að hann hafi öll önnur merki fólgin í skapgerð sinni. Fiskurinn getur því verið víðsýnn og margbrotinn, fær um að skilja ólíkt fólk og setja sig í spor annarra. Hann hefur sterka aðlögunarhæfni en einnig fjölbreytta valkosti um eigið líf. Hann er því oft fjölhæfur, en getur átt erfitt með að takmarka sig og 'fókusera' á eitt ákveðið.
Ímyndunarafl
Annar sterkur eiginleiki Fisksins er ímyndunarafl og þar af leiðandi hæfileiki til að sjá atburði og fólk fyrir hugskotssjónum sér. Hann hefur einnig sterkt innsæi. Þetta þýðir að Fiskurinn getur búið til myndir af því sem hann er að hugsa um.
Tveir heimar
Tákn Fisksins er tveir fiskar sem synda hvor í sína áttina, en eru eigi að síður tengdir saman með bandi. Þetta hefur verið túlkað á nokkra vegu. Ein kenningin er sú að til séu annars vegar Fiskar sem syndi á móti straumnum og hins vegar þeir sem láti sig berast með veðri og vindum lífsins. Þetta getur verið rétt, en einnig er hugsanlegt að þetta tákni að í hverjum einstökum Fiski búi tveir eðlisþættir eða ákveðin klókindi. Fiskurinn geti því synt á móti straumnum og geri það þegar sá gállinn er á honum, en kunni einnig að sæta lagi og berast með straumnum þegar það hentar honum betur. Önnur kenning er sú að annar Fiskurinn sé í þessum heimi en hinn lifi í annarri veröld, í heimi ímyndunarafls, lista eða andlegra málefna, eftir því hver persónuleg viðhorf viðkomandi eru. Það er að minnsta kosti staðreynd að Fiskurinn þolir illa gráan og hversdagslegan veruleika og þarf á því að halda að glæða líf sitt litum og búa til ævintýri.
Fiskarnir tveir birtast einnig í framkomu þeirra sem í merkinu eru. Segja má að hún sé tvíþætt. Annars vegar er það hinn vingjarnlegi og ljúfi Fiskur og hins vegar hvalurinn eða stórfiskurinn sem gleypir smáfiskana.
Ljúfmennska
Hinn venjulegi Fiskur þekkist oft á vingjarnlegu brosi og mjúkri tjáningu. Hann er skilningsríkur, friðsamur og nærgætinn í framgöngu og reynir að ná til allra. Augu hans eru gjarnan viðkvæmnisleg og stundum eilítið dreymin, enda fer töluvert af orku hans í ímyndanir og innri vangaveltur. Hreyfingar hans einkennast af mýkt sem er stundum svo mikil að hann virðist liðamótalaus. Hann virðist því ekki alltaf ganga, heldur svífa eða líða áfram. Þetta sést til dæmis vel þegar hann dansar.
Stefnubreytingar
Hvalurinn er Fiskur sem notar næmleika sinn til að stjórna. Maður sem hefur ímyndunarafl og getur sett sig í spor annarra veit um leið hvernig best er að fara að hverjum og einum. Hann sér inn í fólk og notar innsæið sínum málum til framdráttar. Stundum gerir hann þetta á áberandi hátt, stundum ekki. Það er því ekki alltaf víst að fólk taki eftir því þegar Fiskurinn er að stjórna eða koma sínum málum í gegn. Þegar hvalurinn er við stjórnvölinn getur gengið á ýmsu. Það gustar oft af honum, oft er skipt um stefnu, stundum á að sæta lagi og stundum er sett á fullt stím með storminn í fangið. Fiskurinn getur því verið óútreiknanlegur sem stjórnandi. Oftast er það innsæi hans eða tilfinning fyrir viðfangsefninu hverju sinni sem stjórnar því hvert er haldið. Í augum þeirra sem ekki búa yfir sömu eiginleikum getur hann stundum virst sjálfum sér ósamkvæmur, óútreiknanlegur eða mislyndur.
Skilningur
Vegna þess hve næmur Fiskurinn er á annað fólk, getur hann verið hjálpsamur og fórnfús. Hann finnur til með öðrum og vorkennir fólki sem á í erfiðleikum. Margur Fiskur fæst því við hjálpar- eða læknisstörf, þó ýmsum þeirra sé um megn, vegna eigin næmleika, að vinna beinlínis við umönnun sjúkra. Í staðinn hjálpa þeir þá óbeint, til dæmis með því að hlusta á vandamál annarra og reyna að gefa þeim góð ráð. Margur Fiskur hefur lent í því hlutverki að vera nokkurs konar ruslatunna fyrir vandamál vina og ættingja.
Í eigin heimi
Framangreint er þó alls ekki algilt, því einnig er til sú útgáfa af Fiskinum sem lokar augunum fyrir vandamálum annarra. Það getur verið vegna þess að hann er það næmur að honum finnst vandamál óþægileg, en einnig vegna þess að hann er það upptekinn í heimi eigin ímyndunarafls, að hann tekur ekki eftir umhverfinu.
Menning
Áhugi á tónlist, menningu og listum er áberandi í fari Fisksins. Ef hann leggur ekki sjálfur stund á listir hefur hann yfirleitt gaman af því að njóta lista, sækja leikhús, kvikmyndasýningar, tónlistarviðburði, málverkasýningar og þess háttar. Einnig hefur hann oft gaman af því að dansa og margir af frægustu dönsurum heimsins hafa verið í Fiskamerkinu eða haft Neptúnus, plánetu merkisins, í sterkri afstöðu.
Innlifun
Auk listaáhuga er áhugi á andlegum málum áberandi hjá mörgum Fiskum, en þó ekki öllum. Áhugi á öllu dularfullu er einnig áberandi. Að baki listrænum og trúarlegum áhuga Fisksins býr sama orkan. Það er orka innlifunar og samsömunar. Þegar Fiskurinn hefur öðlast andlegan þroska opnast um leið augu hans fyrir því að allur heimurinn er ein heild. Þess vegna telur hann það ekki eftir sér að hjálpa öðrum. Hann hefur samúð með því einstaka en getur jafnframt séð samspil heildarinnar.
Sköpun
Til að viðhalda lífsorku sinni og endurnýja hana þarf Fiskurinn að fá jákvæða útrás fyrir ímyndunarafl sitt í einhvers konar skapandi viðfangsefnum. Hann tekur mikið inn á sig og þarf því að hreinsa sig reglulega af utanaðkomandi áhrifum. Það getur hann gert með því að njóta tónlistar, með því að draga sig annað slagið í hlé eða með því að breyta til og skipta um umhverfi.
Stór og fjölbreytilegur bás
Vegna sterkrar aðlögunarhæfni og sveigjanleika er sennilega erfiðast af öllum stjörnumerkjunum að setja Fiskinn á afmarkaðan bás. Margir Fiskar sækja í listir, tónlist og dans, aðrir í fjölmiðla, sumir í stjórnmál og enn aðrir í viðskipti. Hvert sem sviðið er nákvæmlega þá notar Fiskurinn innsæi sitt og ímyndunarafl, og er skapandi, stórtækur og landamæralaus í athöfnum.
Þegar talað er um 'Fiska' og 'Fiskinn', er átt við þá sem fæddust þegar Sólin var í Fiskamerkinu. Þeir einstaklingar sem fæddust á þeim árstíma hafa 'hjartað' í þessu merki, eða grunneðlið og lífsorkuna.
Staða Tunglsins í merki segir til um tilfinningar, staða Merkúrs um hugsun, Venusar um ást og samskipti, Mars um framkvæmdir, Rísandi merkis um framkomu og staða Miðhimins um (þjóðfélags)markmið. Hver einstakur maður er í nokkrum stjörnumerkjum og þess vegna eru gerð stjörnukort, en ekki bara fjallað um stjörnumerkin.
ÆTLI ÞETTA PASSI EITHVAÐ VIÐ MIG